ANS Switch Ferðahleðslutæki 6-16A (með skjá og íslenskum merkingum)
ANS Switch Farandhleðslustöðin er stillanlega frá 6A upp í 16A (3,6kW) með hnappi. Á skjánum má sjá upplýsingar um hitastig, hve mikið hefur verið hlaðið í núverandi hleðslulotu, hleðslutíma, bilanir og fleira. Á bakhlið stöðvarinnar eru tæknilegar upplýsingar, tafla sem útskýrir þýðingu LED ljósa og notkunarleiðbeiningar. Merkingar eru á Íslensku og Ensku.
Stöðin er fáanleg með hleðslutengli af gerð 1 (T1) eða gerð 2 (T2). Rafmagnsöryggi er alvörumál! Athugið að ferðahleðslutæki eru hvorki hönnuð né ætluð sem varnaleg lausn til hleðslu. Tækin eru ætluð til vara þegar fasttengd hleðslustöð er ekki til taks. Mikil notkun mun stytta líftíma tækisins og getur valdið tjóni á bíl og hlutum rafkerfis (sjá nánar hér)
Nánar:
- Notkun:Stungið í samband við hefðbundinn heimilistengil
- Varnarflokkur: IP65
- Mál:178mm(L)*80mm (B)*45mm(H)
- Spenna:AC220V/120V/208V/240V
- Straumur:6A Min - 16A Max
- Tíðni:50Hz Or 60Hz
- Leyfilegt hitasvið: -25°C - +50℃
- Með innbyggðri DC vörn
Notkunarleiðbeiningar:
- Stöðinni er stungið í samband við hefðbundinn tengil.
- Veljið hámarks straum (16A, 13A, 10A eða 8A)og tengið síðan bílinn. Athugið að sjálfgefið val er 16A og því nauðsynlegt að vera meðvitaður um hvernig stilla skal stöðina.
- Þegar búið er að stinga í samband er mælt með því að ganga úr skugga um að hleðsla sé hafin áður en bifreiðin er yfirgefin. Ef annaðhvort bilanaljósið (Fault1 eða Fault2) blikkar eða logar veitir eftirfarandi tafla upplýsingar um bilunina:
Ástand | Power | Mode | Fault1 | Fault2 |
Upphafsástand | Logar |
Blikkar | Blikkar | Blikkar |
Í sambandi við bíl og tengil |
Logar |
Slökkt | Slökkt | Slökkt |
Hleður |
Logar |
Blikkar | Slökkt | Slökkt |
Fullhlaðinn (hleðslu lokið) |
Logar |
Logar | Slökkt | Slökkt |
Sjálfvirk prófun eftir bilun | Logar | Slökkt | Logar | Logar |
Bilun í samskiptum við bíl | Logar | Slökkt | Slökkt | Logar |
Yfir eða undirspenna |
|
Slökkt | Logar | Slökkt |
Bilun í jarðtengingu |
|
Slökkt | Slökkt | Blikkar |
Bilun vegna yfirstraums |
Logar |
Slökkt | Blikkar | Slökkt |
Bilun vegna straumleka |
|
Slökkt | Blikkar | Blikkar |
Bilun vegna ofhitnunar |
|
Logar | Logar | Logar |
Athugið að þó stöðin sé vatnsheld er ávallt mælt með því að skýla tenglum og boxi fyrir raka eftir því sem kostur er.