Áfram
Þriggja eða einfasa?

Þriggja eða einfasa?

Á Íslandi er rafmagn í flestum eldri einbýlishúsum einfasa. Í nýrri einbýlishúsum er venjulega þriggja fasa rafmagn. Í fjölbýlishúsum á að vera þriggja fasa rafmagn.

Þegar velja á hleðslustöð er nauðsynlegt að hafa í huga að ekki er hægt að tengja þriggja fasa stöð við einfasa rafmagn. Sé þriggja fasa rafmagn hins vegar í boði er vert að íhuga kaup á þriggja fasa stöð. Þær stöðvar kosta að jafnaði meira en þannig fæst styttri hleðslutími. Athugið þó að í mörgum tilfellum er geta bílsins til að taka við hleðslu minni en geta stöðvarinnar.

Fyllsta öryggis þarf að gæta í vali og uppsetningu á hleðslustöð. Það verður rafvirkjameistari, samþykktur af Mannvirkjastofnun að gera.

Fyrri grein En Gummi frændi þarf líka að hlaða
Næsta grein Góðir hlutir gerast hægt: Að elska rafhlöðuna sína